Hópabókanir
Hægt er að bóka fyrir hópa í gegnum email: Bogfimisetrid@bogfimisetrid.is
| Hópaafslættir: | |
|---|---|
| 10 – 20 manns | 15% af verði |
| 21 – 35 manns | 20% af verði |
| 36+ manns | 25% af verði |
Afslátturinn gildir aðeins ef að bókað og greitt er 10.000.kr staðfestingar gjald fyrirfram. Staðfestingar gjaldið er ekki endurgreitt nema ef að hópur afbókar a.m.k. 48 tímum áður en tíminn átti að hefjast. Eftirstöðvarnar eru svo gerðar upp á staðnum. Þannig að þú greiðir bara fyrir þá sem mæta og skjóta í hópnum. En ef bókað er t.d. fyrir 12 manns en á endanum mæta bara 8 af hópnum sem greiða þá gildir hópa afslátturinn eðlilega ekki, þar sem að búið var að taka frá svæði fyrir þá aðila í hópnum sem mættu ekki sem hefði verið hægt að selja út til annarra viðskiptavina.
Tímaverð | |
|---|---|
| 30 mínútur | 3.000 kr. á mann |
| 60 mínútur | 4.000 kr. á mann |
| 90 mínútur | 5.000 kr. á mann |
börn (16 ára og yngri).
Það gildir líka fyrir hópa og gert upp þegar ljóst er hve mörg ungmenna, fullorðnir og slíkt eru í hópnum
Mögulegt getur verið að bóka hópa utan venjulegs opnunartíma, til þess að athuga það vinsamlegast hafði samband með góðum fyrirvara.
Það getur verið að það sé ekki alltaf mögulegt að koma á móts við bókun hópa utan opnunartíma þar sem flestir sem starfa í Bogfimisetrinu eru einnig í landsliðum, öðrum vinnum og/eða skóla og því gæti það t.d. stangast á við landsliðsverkefni og slíkt.
Þess vegna er mikilvægt að hafa samband með eins miklum fyrirvara og mögulegt er til þess að athuga með slíkt svo að meiri líkur séu á að slíkt gæti gengið upp.
10.000.kr útkallsgjald bætist við verð þeirrar þjónustu sem keypt er utan opnunartíma.
(Semsagt verð hópsins á venjulegum tíma + 10.000.kr, sem við þurfum að greiða starfsmanninum fyrir útkallið 😊)
Fyrir barna hópa (16 ára og yngri) þarf að vera 1 fullorðinn á hver 3 börn á meðan skotið er öryggisins vegna.
Börn geta verið óútreiknanleg og hvatvís, sérstaklega í hópum. Í gamaninu gleymast oft öryggisreglur og börn átta sig ekki á því að boga er einnig hægt að nota sem vopn og grín getur þá breyst í alvöru.
Því þarf að hafa meiri eftirlit með þeim svo að allir hafi gaman og fari heilir heim 😊
Ath. að neysla áfengis og/eða vímuefna er ekki leyfileg í salnum. Þeir sem eru undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna verður vísað frá.
Bogfimisetrið ehf.
Dugguvogur 42
104 Reykjavík
Símanúmer: 571-9330
Kennitala: 710812-0550
Reikningsnúmer: 0331-26-007108

