Hópar

Hópaverð*


10 – 20 manns15% af heildarverði
21 – 35 manns20% af heildarverði
36+ manns25% af heildarverði

Tímaverð


30 mín3.000 kr. á mann
60 mín4.000 kr. á mann
90 mín5.000 kr. á mann

Bókið hópinn í gegnum netfangið: bogfimisetrid@bogfimisetrid.is

*Hópaverð gildir aðeins ef greitt er staðfestningagjald og farið er eftir skilmálum hér fyrir neðan

Leiðbeiningar fyrir hópabókun


  1. Afslátturinn gildir aðeins ef bókað er og greitt 10.000 kr. staðfestingargjald fyrirfram.
  2. Staðfestingargjaldið er óendurkræft nema hópurinn afbóki a.m.k. 48 tímum áður en tíminn átti að hefjast.
  3. Eftirstöðvarnar eru gerðar upp á staðnum, þú greiðir aðeins fyrir þá sem mæta og skjóta.
  4. En ef bókað er fyrir t.d. 12 manns en aðeins 8 mæta þá gildir hópaafslátturinn ekki þar sem búið var að taka frá svæði fyrir þá aðila í hópnum sem ekki mættu og hefði verið hægt að bóka aðra á svæðið.

Ath. að neysla áfengis og/eða vímuefna er ekki leyfileg í salnum. Þeir sem eru undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna verður vísað frá.

Bókið hópinn í gegnum netfangið: bogfimisetrid@bogfimisetrid.is

Barna hópar (16 ára og yngri)


Fyrir barnahópa (16 ára og yngri) þarf að vera 1 fullorðinn á hver 3 börn á meðan skotið er öryggisins vegna.

Börn geta verið óútreiknanleg og hvatvís, sérstaklega í hópum. Í gamaninu geta gleymst öryggisreglur og börn átta sig ekki á því að boga er einnig hægt að nota sem vopn og grín getur snögglega orðið að alvöru.

Því þarf að hafa meira eftirlit með þeim svo að allir hafi gaman og fari heilir heim.

Bókið hópinn í gegnum netfangið: bogfimisetrid@bogfimisetrid.is

Bóka utan opnunartíma


Möguleiki er á því að bóka hópa utan venjulegs opnunartíma. Til þess að athuga með það vinsamlegast hafðu samband með góðum fyrirvara.

Ekki er alltaf hægt að koma til móts við bókanir hópa utan opnunartíma þar sem flestir starfsmenn Bogfimisetursins eru einnig í landsliðum, öðrum vinnum og/eða skóla og því gæti það t.d. stangast á við landsliðsverkefni og slíkt.

Mikilvægt er að hafa samband með eins miklum fyrirvara og hægt er til að auka líkur á því að hægt sé að koma til móts við þær bókanir.

10.000 kr. útkallsgjald bætist við verð þeirrar þjónustu sem bókuð er utan opnunartíma. (Verð hópsins á venjulegum tíma + 10.000 kr., sem við þurfum að greiða starfsmanninum fyrir útkallið 🙂)

Bókið hópinn í gegnum netfangið: bogfimisetrid@bogfimisetrid.is